miðvikudagur, mars 08, 2006

molla

Búið að vera feitt að gera í vinnunni síðustu vikurnar, mar gæti séð framá að eiga fyrir nýju sokkapari á næstunni........Ekki 100 eins og sumir !

Skólinn á hvínandi snúning. Tveir kúrsar búnir : Inngangur að lögfræði og samningaréttur, við tekur ágrip af persónu, sifja og erfðarétti, því næst ágrip af réttarfari og svo stór kúrs í eignarétti. Námið endar svo í ágripi af félagarétti og í kjölfarið próf með lágmarkseinkunn 7................. SHIT

Prófdagar eru 13, 17 og 20 maí, frúin á einmitt von á sér 15 maí ! svo ég bara bíð og vona að hún haldi í sér fram yfir 20.

Það stefnir allt í að eldhúsinnréttingin mæti til landsins í lok vikunnar eða byrjun næstu, verður nettur munur að fá hana upp allavega.

Annars bara allt gott, get alveg mælt með Selfossi að mörgu leyti þó að það kosti nokkur hornaugu annað slagið frá félögum úr gömlum faðmlög

Taka hana upp.......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home