þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Allt að detta í fastar skorður

Jæja þá er víst kominn endir á þetta sumar sem er búið að vera algjör snilld og við tekur þessi skóla pakki. Ég er með fulla töflu og vel það ( 2 eyður á viku) sem er svona la la. Er svo í kvöldskóla líka og vinna allar helgar þannig að það ætti að verða nóg að gera að ógleymdu skemmtanalífinu sem má náttulega ekki gleymast, býst nú reyndar ekki við því að það gerist.......

Meðan ég man þá er ég víst kominn með 1 stk Ford í umboðssölu silfurlitaður skratti sem ættaður er frá Rjóðri.....Ef einhver hefur áhuga þá endilega hafa samband.

Gleymdi áðan....Gestabókin er tilbúin Það verður gaman að sjá hver verður heiðursgestur nr 1

mánudagur, ágúst 30, 2004

"Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar"

Jæja halló heimur.... Nú er kallinn að reyna að stíga sín fyrstu skref í þessum heimi blogsins svo kemur það víst bara í ljós hvort það er einhver sem hefur áhuga á að lesa... vonum það nú. Útlitið á þessu hjá mér á vonandi eftir að skána eitthvað eftir því sem tími gefst til. Hvernig líst ykkur annars á ?