mánudagur, febrúar 20, 2006

Jæja kominn tími á línu á kantinn.........

Mar hefur ekki undan að fylgjast með tímanum líða..........helsti mælikvarðinn er kannski bumban á betri helmingnum sem er að verða alveg þokkalega vænleg, og kallinn alltaf jafn stoltur af henni eða þeim !

Annars eru hlutirnir að verða komnir í fastar skorður eftir flutninga og breytingar sem þeim fylgja. Strákurinn byrjaður í skólanum og líkar vel, konan byrjuð að vinna á snyrtistofu í bænum við að snyrta Selfoss guggur. Ég keyri glaður í bragði yfir heiðina á 6 sinnum í viku, réttara sagt 12 sinnum. Já það er sannur heiður að fá að vera einn með sjálfum sér í klukkutíma á dag ! Þá hef ég sjálfan mig svona útaf fyrir mig sko eða þannig eða.......... Hef ekki ennþá stoppað á heiðinni til að flytja mér leikþátt en það á eftir að detta inn.

Afhverju tannburstar mar sig ekki uppúr heitu vatni, ætli það væri betra fyrir tennurnar en verra fyrir bragðlaukana ? Þegar maður skúrar gólfið, þvær hendurnar og öll almenn þrif eru framkvæmd með heitu vatni hefði ég haldið. Málamiðlun væri kannski að nota volgt vatn, er það kannski það sem fólk er að gera svona almennt ? Reyndar myndast við núning burstans við tennurnar einhver varmi en það kemur aldrei í stað burstunnar uppúr 40-50 gráðu heitu vatni............Eða hvað ?

Já þetta svona aðeins lá á mér !

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Með mynd af bílnum í vasanum.!

Það er allt að verða klárt í höllinni, vantar reyndar netið ásamt smá fínpússi eins og að hengja upp loftnet og bílskúrshurðaopnara að ógleymdri eldhúsinnréttingunni sem kemur ekki fyrr en eftir rúmar 4 vikur og þá á eftir að bíða í 2 vikur eftir granítinu !

Skólinn er kominn í fullan gang og fyrsta hluta efnisins lokið sem var inngangur að lögfræði, held að það sé alveg ljóst að þetta er ekki nám sem bíður uppá hangandi hendur............

Þorrablót framundan........Það er náttlega skyldumæting á það, tala nú ekki um fyrst að Danskir framamenn ætla víst að heiðra samkomuna með nærveru sinni.

Gott að vera góður grillari.

laugardagur, febrúar 04, 2006

Búið og gert....

Jæja þá er mar fluttur............Endilega droppa við, Tjaldhólar 26, Selfossi. Heitt á könnunni.......................allavega kaldur í kæli !